Liðin eru fimm ár og loksins tókst það, ég er stúdent. Undir lokin tókst mér nú samt að vera hent út af Reðursafninu fyrir dólgslæti. Safnvörðurinn vildi ekki brosa. Það er aðeins án ástæða sem veldur því að maður brosi ekki þegar maður er umkringdur aflimuðum böllum í formalíni... minnimáttarkennd.
Framundan er vinna, nær stanslaus vinna, borga skuldir. En maður gælir við hugmyndina um búfræðinginn og sagnfræði. Það verður samt ekki strax.
Hvað varðar skemmtanalíf þá er það Lopapeysan á írskum á morgun. Svo er það veiðiferð í Hítardalinn. Þá helgi eru kvenmenn ekki velkomnir með svo maður þarf, eins og orðað er, að "dæla í tunnur" áður en maður fer. Það er ekkert annað skipulagt yfir sumarið, en það breytist þegar nær dregur.
Annars vil ég benda fólki á það þar sem umferð er farin að aukast, að hugsa vel til allra vörubílstjóranna sem eru á ferðinni. Þó svo að þeir keyri hægt og taka mikið pláss þá eru þetta þeir sem sjá til þess að maður getur fengið sér pylsu í Hyrnunni, bensín á næstu dælustöð eða fyrir þá sem vilja sleypiefni og uppblásna dúkku og/eða gúrkur.
...áfram, áfram, áfram bílstjórinn...
04. júlí 2008 klukkan 22:51
Jón Örn Vilhjálmsson 3 athugasemdir
Sólarhringsvaktir, kaffidrykkja, frekari kaffidrykkja og fleiri vaktir langt fram eftir nóttu. Allt í einu eru verkefnaskil og undirbúningur fyrir brottför að drekkja manni.
Guðni hefur ákveðið að gera eitthvað í tengsl við MA-komiks. Ég tel það vera leikna sjónvarpsþætti þar sem Jón Görn tekst á við yfirnáttúrulega óvætti. Minni alla á MA-komiks. En án efa er það mun heilsusamlegra, áhugavert verður að sjá hvað hann ætlar sér að gera úr þessu, sérstaklega þar sem hópurinn er dreifður og nýr innblástur á víð og dreif líkt og alvöru karakterarnir.
Ég heilsaði upp á Torfa frænda um daginn, var að leita að traktor og fjár- eða sturtuvagni fyrir dimmiteringuna. Ég fékk afbragðs fiskrétt í staðinn, harðfiskpoka og smjör! Ég er heldur betur sáttur, gestrisni hans og Önnu er alveg með einsdæmum.
Eina sem hægt er að kvarta yfir í dag er óheppileg svefnþörf og skortur á frekari nýtingu félagslífsins síðustu daga skólans ,þar sem maður liggur yfir uppsöfnuðum verkefnum eða bara lokaverkefnum.
Minni á texta þessa daganna, sem var nýverið uppfærður.
...Yfir til þín, á vorsins vængjum flýg ég. Yfir til þín ber ljósvakinn mitt ljóð...
20. maí 2008 klukkan 09:06
Jón Örn Vilhjálmsson 1 athugasemd
Þegar loks birtir fyrir hellismunanum og maður sér hvað er fyrir handan þá virðist sem að hellirinn sé það eina rétta og það taki því ekki að kíkja út. Eitt er víst að hvað sem maður mun taka að sér þegar maður er neyddur út um hellismunann út á opna gresjuna, þá er alltaf fínt að fá brjóst...
...þó að það færi fyrir brjóst, á þeim sem ekki hafa brjóst og er'að horfa á...
13. maí 2008 klukkan 08:24
Jón Örn Vilhjálmsson 2 athugasemdir
Nú liggur svo í flóði fjara að ég hef týnt allri þeirri sekkjarpíputónlist sem ég varð mér út um forðum daga og hef ekki getað orðið mér út um á ný með sama máta og áður. Þess vegna spyr ég hvort einhver geti orðið mér út um sekkjarpíputónlist eða bent mér hvar hana sé hægt að nálgast.
Fyllerí (?) í frelsi á ný. Góðir félagar á góðri stundu og slæmri eflaust líka. Við komum, sáum og... fórum. Skemmtum okkur þó konunglega á meðan svo ekki er hægt að kvarta yfir einu eða neinu.
Það er samt fátt fyndnara en þegar maður verður var við fulla og lausláta busastelpu sem tekist hefur að lauma sér inn á skemmtistað þar sem hún á ekki heima. Enþá fyndnara þykir mér þó þegar að ekki einu sinni Pólverjar eða aðrir útlendingar vilja ekkert með hana hafa, sama hversu mikið hún reynir að selja sig. Þessi grey.
...fann ég bólstað og bjó...
04. maí 2008 klukkan 07:06
Jón Örn Vilhjálmsson 4 athugasemdir
Nú er ákveðnum kafla lokið og nú bíður maður endalegum lokum hans með prófum og brautskráningu. Það er vonandi að komandi tímar verði jafn áhrifamiklir og kátínuvekjandi eins og síðastliðin ár.
„Þú ert nú meiri forhúðarosturinn helvítis imbahala kúkalabbi!"
-Jón Örn Vilhjálmsson
02. maí 2008 klukkan 16:15
Jón Örn Vilhjálmsson Engin athugasemd
Markt hefur átt sér stað síðustu vikur og lengra en það... markt hefur átt sér stað frá því að þá var ákveðið að muna eftir því sem vert var að muna og þegar ritmálið kom til sögunnar var það merkilegasta hripað niður.
Til að mynda er Gettu betur lið MA komið í úrslit og er stefnan sett á Vetrargarðinn í beina útsendingu...
Það lést maður fyrir skömmu, maður sem ég gat ekki ímyndað mér að hitta nokkurntíma. Þessi maður, E. Gary Gygax er sá einstaklingur sem á hvað stærstan hlut í að móta mig án þess nokkurn tíma að við skyldum hittast (skáldsagnapersónur eins og Jesú, Sherlock Holmes og Barbapabbi eru ekki taldir með). Hann var frumkvöðull á sínu svið og það svið er mikið áhugamál hjá mér. Takk fyrir mig... Til heiðurs honum var mínútuþögn og gert það eina rétta í stöðunni til að heiðra minningu hans.
Ef einhver hefur góða ábendingu varðandi hlutastarf á kvöldin hér á Akureyri þá væri hún vel þegin.
station...
10. mars 2008 klukkan 18:12
Jón Örn Vilhjálmsson 3 athugasemdir
Próftíð minni er lokið... Vænti þess að þetta hafið gengið jafnvel og fyrir manninum sem ákvað: "Hey, ætli það virkar að hreyfa sig milli staða bara á afturfótunum?"
Í tilefni þess fékk ég mér fisk... á upphandlegginn.
Nú er bara að koma sér heim á þorrablótin sem bíða manns... ef það væri ekki þessi vindur... þá hefðu menn seint uppgötvað hve þægilegt það er að ferðast um á skipum, ásamt því að ég væri lagður af stað suður á bóginn, með halla til vesturs.
22. janúar 2008 klukkan 17:09
Jón Örn Vilhjálmsson 1 athugasemd
Eins freistandi og það er að endurvekja Munin, vera með fleiri en tvö viðtöl og taka viðtöl af fólki sem eru meira spennandi Mr. Ploppy the Dungsweeper. Blað sem slær í kringum 100 blaðsíður. Þá hef ég ekki reynsluna til þess að gera þetta né nennið. Tíminn er örugglega alveg nægur, þar til að maður fer að vinna. Til þess að manni tækist þetta þá þyrfti maður aðstoð sem að ég efast um að sé til staðar hér í skólanum... sérstaklega þegar ég á að stjórna þessu.
Eins freistandi og það er að skilja við skólann með gríðarlegri menningarsprengju sem væri þetta blað og hversu freistandi það er að hafa forsíðuna af mér sitjandi á prjónandi hest, meðan ég er í engu nema g-streng, með gjósandi kampavínsflösku í einni hendi og með grip á kettling um skottið í hinni. - Þá hef ég ekki styrkinn til að gera þetta með mannskap sem ekki væri nægur í byrjunarlið í fótbolta.
Aftur á móti þá er alltaf hægt að grenslast fyrir og byrja á því að sjá hverjir hefðu áhuga á að fylgja manni í gegnum þá þolraun, án þess að beila rétti undir lokin.
18. janúar 2008 klukkan 14:21
Jón Örn Vilhjálmsson 2 athugasemdir
Jólin komu með þrumum og eldingum þetta árið... allavega þrumu og eldingu... allavega í borgarfirði...
Annars er ég með glóðurauga...
Nei Gussi. ég nenni ekki að standa í ritstjóramálum... fólk yrði ósátt ef maður setti hakakrossinn á forsíðuna... eða klám í miðjuopnu... ég á þvengum?
...Johnny came home headless, it was a great disgrace...
24. desember 2007 klukkan 18:55
Jón Örn Vilhjálmsson 5 athugasemdir
Venido venido pronto sí pronto amare,
venido venido pronto sí aprisa sentime,
viene sí rápido viene pronto amare,
venido pronto darme el gusto del amor.